brikin.djammari.is
17. janúar - 2003.
Jæja gott fólk. Eins og fastagestir vefsins hafa eflaust tekið
eftir, hefur fjöldi laga hjá okkur aukist nokkuð jafnt og
þétt frá því við hófum "útsendingu". Fjölmargir aðilar hafa
verið iðnir við að senda okkur lög og vonandi verður ekkert
lát þar á. Vert og skilt er að þakka þeim og hrósa.
Ein nýjung bætist við vefinn
okkar í dag. En
það er spjallsvæði þar sem við,
gítargutlararnir, getum skiptst
á skoðunum um málefni tengd tónlist.
Fleiri nýjungar eru
á döfinni hjá okkur, s.s. að virkja
flokkinn "Prentvænt",
en þar er meiningin að koma upp samantektum af
vinsælustu
lögunum á prentvænu formi. Einnig stendur
til að breyta
útgáfuformi laganna, þ.e. að hafa þau
t.d. á .txt eða .pdf
formi. Fleiri tillögur um nýjungar á vefinn
eru vel þegnar
á netfangið okkar brikin@djammari.is.
- - - - - - - - - - - - - - - - -
Velkomin á Bríkina. Eins og nafnið
bendir til er hér á ferðinni stórskemmtilegur
gítarvefur, þar sem áhugamenn um mikið
djamm, gítarspil og aðra gleði, geta komið
saman og kastað af sér mæðu hversdagsins.
Uppistaða vefsins eru textar og gítargrip úr
safni okkar sem við viljum endilega deila með öllum
gítargutlurum um allt land og auðvelda þeim
leit að skemmtilegum lögum sem jafnan vekja mikla
kátínu hvar sem þau eru "tekin".
Jafnframt verður annað skemmtiefni tengt gítargutli
hér, s.s. listi yfir öll möguleg og ómöguleg
gítargrip, prentvæn útgáfa af Bríkinni
og fleira til sem okkur á eflaust eftir að detta
í hug á næstu dögum og vikum.
Að lokum er vert að taka fram þakkir
til þeirra sem lagt hafa hönd á plóg
við að koma þessu safni heim og saman. Því
fá Andri Örn Víðisson, Ellert Hlöðversson,
Gísli Þór Þórarinsson (Fowlerinn),
Hlynur Þór Valsson, Magnús Sigurðsson
og Styrmir Barkarson beztu þakkir fyrir það
sem þeir létu af hendi rakna.
Lifið heil og njótið vel.
borgar er. og Frikki Stef.